Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfarar veita þjónustu sem miðar að því að bæta, viðhalda og endurhæfa hreyfigetu og virkni fólks. Þeir aðstoða fólk á öllum lífsskeiðum þegar sótt er að hreyfigetu og virkni vegna öldrunar, slysa, sjúkdóma, kvilla, ástands eða umhverfislegra þátta.

Sjúkraþjálfarar stuðla að auknum lífsgæðum fólks með því að huga að líkamlegri, huglægri, tilfinningalegri og félagslegri vellíðan. Þeir starfa innan heilbrigðisgeirans við heilsueflingu, forvarnir, meðferð, þjálfun, hæfingu og endurhæfingu.

Sjúkraþjálfarar vinna við að:

Þekking sjúkraþjálfara á mannslíkamanum og hreyfifærni hans er lykilatriði til greiningar og ákvörðunar varðandi meðferð og þjálfun skjólstæðinga. Sjúkraþjálfunin tekur þá mið af því hvort verið er að leita til sjúkraþjálfarans vegna heilsueflingar, forvarna, meðhöndlunar, þjálfunar, hæfingar eða endurhæfingar.

Fara á Biðlista

Ef sótt er um þjálfun fyrir barn undir 18 ára þá þarf að fylla út bæði fyrir forráðamann og barnið: