SJÁLFSBJÖRG

AKUREYRI OG NÁGRENNI

Velkomin á Bjarg Endurhæfingu

Hópþjálfun

  • Gigtarhópur: Hópþjálfun fyrir fólk með stoðkerfisvanda.
  • Byrjar mánudaginn 16.september
    Gönguæfingar, liðkandi og styrkjandi æfingar, jafnvægi, samhæfing, liðferilsæfingar,
    teygjur og slökun.
    Mánudaga 9:00-9:55 & fimmtudaga klukkan 10:00-10:55  
  • Hreyfing, heilsa og vellíðan:
  • Byrjar þriðjudaginn 17.september.
    Fyrir einstaklinga sem eru í eða hafa lokið meðferð við krabbameini. Áhersla á að
    byggja upp líkamlega heilsu, unnið með styrk, þol og jafnvægi. Skemmtilegir og
    fölbreyttir tímar.
    Þriðjudaga klukkan 09:00-09:50 & föstudaga 09:00-09:50  
  • Axlarhópur:
    Er í gangi allt árið
    Fyrir einstaklinga með axlarvandamál, unnið er með styrkjandi æfingar, stjórnun á
    axlar- og hálssvæði, farið yfir líkamsbeitingu og almenn fræðsla.
    Þriðjudaga og föstudaga klukkan 09:00-10:00 
  • Bakhópur:                                                                                                                                                                                                                         Er í gangi allt árið
    Fyrir einstaklinga með bakvandamál, styrktaræfingar, líkamsbeiting og fræðsla.
    Mánudaga og fimmtudaga klukkan 09:00-10:00

  • Létt leikfimi:
  • Byrjar þriðjudaginn 17.september                                                                                                                                                                                    
    Gönguæfingar, liðkandi og styrkjandi æfingar, jafnvægi, samhæfing, viðbragðsþjálfun,
    andlitsæfingar og taktur. Æfingarnar stuðla að aukinni líkamsvitund og bættri
    líkamsstöðu.
    Þriðjudaga & föstudaga klukkan 10:00-10:45

  • Liðvernd: Framhaldshópur er í gangi allt árið
  • Í þessum hóp er unnið markvisst í að auka styrk og stöðuleika í kringum hné- og mjaðmaliði. Áhersla er á fræðslu, æfingar, rétta líkamsbeitingu og líkamsvitund. Einstaklingar ættu að verða meðvitaðri um eigin líkama og sjálfstæðari varðandi æfingar, verki, vandamál og lausnir. Námskeiðið er kennt 7 vikur í senn 

    Miðvikudagar klukkan10:45 – 11:30

 

Sjúkraþjálfarar á Bjargi sjá um alla tímana.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Einstaklingar í hópum þurfa að vera með beiðni í sjúkraþjálfun. 

 

Tækjasalur

  • Skjólstæðingar sem eru á æfingarkorti kvitta í sér merkta spjaldtölvu í afgreiðslu þegar þeir koma inn.
  • Tækjasalur er opinn á milli kl. 7:30 og 9:00 og frá 10:00-15:30 alla virka daga fyrir skjólstæðinga á æfingarkorti og aðra sem eru í þjálfun
  • Hver og einn þarf að spritta eftir sig t.d. hjól, bretti, bekki, handlóð og annað sem hann er að nota. 
  • Við notkun á bekk, ef skjólstæðingar eru að nota kodda þá þurfa þeir að leggja taubleyju yfir koddann og setja hana svo í óhreint eftir notkun (taubleyjur og óhreinatauskarfa er í salnum)  

Bjarg endurhæfing rukkar skrópgjald fyrir hvern tíma sem ekki er afboðaður. Vinsamlegast boðið forföll fyrir hádegi daginn áður í síma 462 6888. Tekið er tillit til ófyrirsjáanlegra atvika. Skrópgjald er 3500 kr. sem leggst á reikning mánaðarins. Tekið er við afboðum frá 7:30 að morgni. ATH! Börn borga einnig skrópgjald.    

Við erum einnig með Facebook síðu https://www.facebook.com/BjargEndurhaefingAkureyri

Furuholt Sumarbústaður

Búið er að úthluta fyrir sumaraði 2024 og það er hægt að sjá hvaða vikur standa eftir. Hægt er að sækja um þær með því að senda póst á jonhardar@bjargendurhaefing.is.

Umsóknarformið fyrir sumarbústaðinn er bilað, sendið póst á jonhardar@bjargendurhaefing.is

 

ENDURHÆFING

Á Bjargi er stunduð almenn iðju- og  sjúkraþjálfun, sogæðanudd, nálastungur, verkjameðferð, endurhæfing eftir slys, áföll og aðgerðir ásamt heimasjúkraþjálfun. Meginn þungi starfsemi Bjargs hefur þó ávallt verið þjálfun barna og heyfihamlaðra.

SJÚKRAÞJÁLFUN

Markmið sjúkraþjálfunar er að veita alhliða þjónustu fyrir fólk á öllum aldri, viðhalda og efla heyfigetu, jafnvægi og færni og draga úr verkjum. Þjónustan er ávallt einstaklingsbundin og fer meðferð fram í einstaklings- eða hóptímum.

IÐJUÞJÁLFUN

Tilgangur iðjuþjálfunar er að efla færni einstaklinga í athöfnum daglegs lífs. Þjónustan felst í að efla jafnvægi, skynhreyfi-, fínhreyfi- og grófhreyfifærni. Þá eru iðjuþjálfar okkar einnig að vinna með hegðunarvanda í gegnum atferlismótandi úrræði.