Framkvæmdir á Bjargi Endurhæfingu

Núna standa yfir framkvæmdir hjá okkur á Bjargi Endurhæfingu, verið er að taka gömlu búningsklefana okkar í gegn og breyta aðstöðunni þar. Við biðjumst velvirðingar á þeim röskunum og ónæði sem skjólstæðingar okkar verða fyrir á þessum tíma

Nýr sjúkraþjálfari

Þann 2.febrúar byrjaði hjá okkur sjúkraþjálfari sem heitir Matt. Matt er frá Ástralíu og hefur verið hjá okkur áður. Við bjóðum Matt velkominn til okkar og hlökkum til að starfa aftur með honum hérna á Bjargi Endurhæfingu.

Greiðsluþátttaka vegna sjúkraþjálfunar

Sjúkratryggingar taka þátt í kostnaði við sjúkraþjálfun.  Niðurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar eru inni í greiðsluþátttökukerfinu.  Hægt er að kynna sér þetta inn á heimasíðu sjukra.is og fara inn á mínar síður til að sjá hvar maður er staddur í greiðsluþátttökukerfinu.  https://island.is/s/sjukratryggingar/einstaklingar-sjukrathjalfun-idjuthjalfun-og-talthjalfun Sjúkratryggingar borga 100% af kostnaðI við iðju-og sjúkraþjálfun hjá börnum undir 18 ára ef þau […]