- Til þess að umsókn teljist gild þá þarf umsækjandi að vera félagsmaður hjá Sjálfsbjörg á Akureyri.
- Þegar sótt er um þá þarf að fylla út formið „Sækja um dvöl“ sem er inn á síðunni okkar Bjarg Endurhæfing (Sumarbústaður) , þar koma fram tvær inn- og útritanir og í fyrri dagsetningarnar setjið þið inn vikurnar sem þið veljið númer eitt og svo veljið þið viku til vara.
- Inn á dagatalinu þar inn sést líka hvaða vikur eru í boði í sumarúthlutun og eru þær merktar t.d sumarúthlutun 1 – sumarúthlutun 17
- Bústaðurinn er leigður frá 16:00 á föstudegi til 12:00 næsta föstudags.
- Öllum sem hafa sótt um fyrir 1.maí verður svarað 4.maí.
- Verð fyrir vikuleigu í sumar er 40.000 og það þarf að borga aukalega 10.000 í þrifagjald sem fæst svo greitt til baka ef öll þrif eru í lagi þegar húsinu er skilað.
- Það er ekki í boði að kaupa þrif.