Fræðileg nálgun

Val á fræðilegri nálgun í iðjuþjálfun

Kanadíska þjónustuferlið er haft til hliðsjónar í samvinnu iðjuþjálfa við skjólstæðinga. Líkanið endurspeglast í þessu skjólstæðingsmiðaða.

þjónustuferli sem lýtur að styrk skjólstæðinganna og úrræðum í áætlun og framkvæmd iðjuþjálfunar. Færni skjólstæðingsins er ávallt í brennidepli.

Kanadíska þjónustuferlið sem notað er í iðjuþjálfun á Bjargi

  1. Tilgreina, réttmæta og forgangsraða.
  2. Val á fræðilegri nálgun.
  3. Greina hæfni og umhverfi. Kannað er hvað hindrar og hvað styður færni. Mat formlegt og óformlegt.
  4. Styrkleikar greindir sem og úrræði í umhverfinu. Unnið með langanir hvað vill skjólstæðingur.
  5. Árangursmark sett og áætlun gerð í samræmi við það.
  6. Áætlun hrint í framkvæmd með iðju, áhrif á iðju – handarþjálfun, handíðir, eldhúsverk, tölva (Prófa nýja iðju, skipuleggja daginn með stundarskrá), áhrif á skjólstæðing – (Fræðsla um streitustjórnun, líkamsbeitingu, slökun, mataræði, jafnvægi í daglegu lífi og hreyfingu), áhrif á umhverfi (fræða fjölskyldu og vini, breyta vinnuaðstöðu).
  7. Mat á árangri. Er árangursmarki náð? Lokamatið setur endapunkt á þjálfunina.