Stofnendur sjálfsbjargar

Þessa mynd tók Eðvarð Sigurgeirsson ljósmyndari á stofnfundi Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Akureyri og nágrenni þann 8. október 1958. Tekist hefur að nafngreina nokkuð marga á myndinni. Sjálfsbjörg þiggur með þökkum ábendingar um nöfn þeirra sem ekki eru nafngreindir hér og eins leiðréttingar ef fólk telur að ekki sé farið rétt með nöfn allra.

1. Skúli Sigurgeirsson
2. Þór Sigþórsson
3. Guðmundur Hjaltason
4. Erla Hallsdóttir
5. Guðbjörg Stefánsdóttir
6. Ragnheiður Stefánsdóttir
7. Snæfríður Ingólfsdóttir
8. Björn Magnússon
9. Jón Ingimarsson
10. Jón Ólafsson

11. Hermann Larsen
12. Skarphéðinn Karlsson
13. Sæmundur Andersen
14. Hafsteinn Pálsson
15. Jóhann Björn Jónasson
16. Ástþrúður Sveinsdóttir
17. Sigríður Árnadóttir
18. Brynhildur Þorleifsdóttir
19. ?
20. Heiðrún Steingrímsdóttir

21. Adolf Ingimarsson
22. Emil Andersen
23. Egill Sigurbjörnsson
24. Anton Kristjánsson
25. Þorbjörg Brynjólfsdóttir
26. Þorbjörg Jónsdóttir
27. ?
28. Kristín Konráðsdóttir
29. Jóhanna K. Sigfinnsdóttir
30. Karl Friðriksson

31. Sigursveinn D. Kristinsson
32. Ólafur Jónsson
33. Sveinn Þorsteinsson
34. Sigríður Jónsdóttir Tram
35. ?
36. Jónas Þórisson
37. Viggó Ólafsson
38. Þorgerður Helgadóttir
39. Líney Helgadóttir

Mynd

Talið frá vinstri: Jón Hlöðver Áskelsson stjórnarmaður, Ívar Herbertsson varaformaður, Jósep Sigurjónsson gjaldkeri, Kristín Sigfúsdóttir ritari, Jakob Tryggvason stjórnarmaður, Herdís Ingvadóttir formaður, Rúnar Þór Björnsson stjórnarmaður, Pétur Arnar Pétursson framkvæmdastjóri, Sigrún María Óskarsdóttir stjórnarmaður.

Sjálfsbjörg Akureyri og Nágrenni

1958

Þann 8. október var Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á Akureyri og nágrenni, stofnað. Sigursveinn D. Kristinsson skólastjóri tónlistarskólans á Siglufirði var hér á ferð, en hann hafði verið helsti hvatamaður að stofnun félaga fatlaðra í Reykjavík, Ísafirði og á Siglufirði. Fyrsti formaður félagsins var Emil Andersen.

1959

Hafist var handa við byggingu á húsi félagsins að Hvannavöllum 10, þar sem nú er hús Hjálpræðishersins á Akureyri. Húsasmíðameistari var Jón Gíslason sem jafnframt byggði húsið að Bugðusíðu 1. Húsið hlaut nafnið Bjarg.

1960

Nýbyggingin að Hvannavöllum 10 tekin í notkun sem félagsheimili og vinnustofur.

1968

Plastiðjan Bjarg tekur til starfa. Fyrsta verkefni Plastiðjunnar var að framleiða ferkantaðar lagnadósir fyrir ítalska fyrirtækið Ticino. Plastiðjunni var ætlað að veita fötluðu fólki atvinnu.

1970

Endurhæfingarstöðin Bjarg opnuð. Magnús Ólafsson sjúkraþjálfari ráðinn.

1971

Plastiðjan Bjarg hefur framleiðslu á fiskikössum

1974

Íþróttafélag fatlaðra stofnað 7. desember. Fyrsti formaður þess var Stefán Árnason.

1976

21. ágúst var fyrsta skóflustungan tekin að nýbyggingu félgsins að Bugðusíðu 1.

1981

Starfsemin flutt að Bugðusíðu 1 og húsnæðið nefnt Bjarg.

1983

Plastiðjan Bjarg gerir samning við ítalska fyrirtækið Ticino um samsetningu á rafmagnsklóm. Samningurinn veitti 11 fötluðum einstaklingum hálfsdagsvinnu.

1984

Ako-plast tekur til starfa. Fyrirtækið var í eigu Sjálfsbjargar en ekki verndaður vinnustaður.

1988

Íþróttahúsið tekið í notkun. 30 ára afmæli félagsins.

1991

Ako-plast selt.

1992

Ríkið tekur rekstur Plastiðjunnar á leigu. Akureyrarbær kaupir hluta kjallarans á Bjargi fyrir félags- og þjónustumiðstöð eldri borgara.

1993

Ríkið kaupir Plastiðjuna Bjarg.

1996

Lokið við frágang bílastæða og lóðar á Bjargi og aðlbygging máluð.

1997

Tveir félagssalir teknir í notkun í kjallara Bjargs.

1998

Félagið 40 ára.

2001

Líkamsræktin Bjarg ehf tekur á leigu húsnæði hjá félaginu og yfirtekur rekstur líkamsræktar.

2002

Sjálfsbjörg Akureyri fær í fyrsta sinn sálfstæðan samning við Tryggingastofnun ríkisins vegna sjúkraþjálfunar.

2003

Sjálfsbjörg afsalar sér réttindum til bygginga á lóð sem liggur á milli Glerárkirju og Bjargs til Akureyrarbæjar, en fær í staðinn verulega stækkun á bílaplani.

2004

Íþróttahús félagsins selt til Líkamsræktarinnar á Bjargi ehf og öll starfsemi líkamsræktar flyst þangað. Samningar nást við Tryggingastofnum ríkisins um starf iðjuþjálfa að Bjargi. Iðjuþjálfun hefst og Anna María Malmquist ráðin til starfsins.

2007

Verulegar endurbætur gerðar á húsnæði félagsins m.a. ný aðstaða fyrir Iðjuþjálfa, ný búningsaðastaða fyrir starfsfólk, endurbætt sameiginleg skrifstofurými sjúkraþjálfara og þrír nýjir meðferðaklefar settir þar sem áður var aðstða göngudeildar SPOEX sem nú flyst á FSA.

2009

Barnasalur félagsins endurgerður.

2010

Húsið málað að utan.

2013

Salur fyrir iðjuþjálfun tekin í notkun.

2017

Sumarbústaður keyptur.