- HÓPTÍMAR
Hópþjálfun
Allir hópar eru í umsjón sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa á Bjargi
Gigtarhópur
Hópþjálfun fyrir fólk með stoðkerfisvanda.
Gönguæfingar, liðkandi og styrkjandi æfingar, jafnvægi, samhæfing, liðferilsæfingar,
teygjur og slökun.
Mánudaga 9:00-9:55 & fimmtudaga klukkan 10:00-10:55
Hreyfing, heilsa og vellíðan
Fyrir einstaklinga sem eru í eða hafa lokið meðferð við krabbameini. Áhersla á að
byggja upp líkamlega heilsu, unnið með styrk, þol og jafnvægi. Skemmtilegir og
fölbreyttir tímar.
Þriðjudaga klukkan 09:00-09:50 & föstudaga 09:00-09:50
Axlarhópur
Er í gangi allt árið
Fyrir einstaklinga með axlarvandamál, unnið er með styrkjandi æfingar, stjórnun á
axlar- og hálssvæði, farið yfir líkamsbeitingu og almenn fræðsla.
Þriðjudaga og föstudaga klukkan 09:00-10:00
Bakhópur
Er í gangi allt árið
Fyrir einstaklinga með bakvandamál, styrktaræfingar, líkamsbeiting og fræðsla.
Mánudaga og fimmtudaga klukkan 09:00-10:00
Létt leikfimi
Er í gangi allt árið
Hópur þar sem lögð er áhersla á gönguæfingar, liðkandi og styrkjandi æfingar og samhæfingu. Æfingarnar fara að stórum hluta fram sitjandi á stól eða standandi við stól. Hentar þeim sem hafa töluverða jafnvægisskerðingu og þurfa að nota gönguhjálpartæki.
Markmið hópsins: Viðhalda eða bæta þrek og færni.
Þriðjudaga & föstudaga klukkan 11:00
Færni og jafnvægi
Er í gangi allt árið
Hópur þar sem lögð er áhersla á jafnvægis- og færniæfingar auk styrkjandi æfinga. Hentar þeim sem hafa væga jafnvægisskerðingu en hafa ekki not fyrir gönguhjálpartæki.
Markmið hópsins: Auka jafnvægi, færni, samhæfingu, styrk og snerpu.
Þriðjudaga og föstudaga 10:00
Liðvernd
Framhaldshópur er í gangi allt árið.
Í þessum hóp er unnið markvisst í að auka styrk og stöðuleika í kringum hné- og mjaðmaliði. Áhersla er á fræðslu, æfingar, rétta líkamsbeitingu og líkamsvitund. Einstaklingar ættu að verða meðvitaðri um eigin líkama og sjálfstæðari varðandi æfingar, verki, vandamál og lausnir.
Námskeiðið er kennt 7 vikur í senn Miðvikudagar klukkan 10:45 – 11:30